Landskeppni SFÍ 2015
Landskeppni Smalahundafélags Íslands 2015 er í umsjá Austurlandsdeildar SFÍ og verður, eins og áður hefur komið fram, haldin í Einholti á Mýrum í Austur- Skaftafellssýslu helgina 29. til 30. ágúst. Einholt er um 30 km vestan við Höfn í Hornafirði.
Keppt verður í eftirtöldum greinum:
- A flokki, opinn flokkur
- B flokki, fyrir hunda sem hafa náð 3ja ára aldri en ekki náð 50 stigum á Landskeppni
- Unghundaflokki, fyrir hunda yngri en 3 ára
Einungis er hægt að skrá sama hundinn í einn flokk.
Dómari verður Ross Gamesy frá Wales.
Keppnin hefst á keppni unghunda á laugardaginn kl. 10:00. Skráningar fara fram hjá Agnari Ólafssyni í s. 845 8199 eða Þorvarði í s. 862 1835, fyrir fimmtudaginn 27. ágúst til að komast í mótsskrá.
Á laugardagskvöldið verður sameiginlegur kvöldverður í Félagsheimilinu Holti.
Hægt verður að tjalda við Félagsheimilið sem er um 5 km frá mótsstað. Einnig er tjalsdsvæði í Haukadal (10 km). Fjöldi annarra gistimöguleika er á svæðinu.