vísir.is
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja leyfa eigendum kaffihúsa, veitingastaða og annarra samkomustaða að hafa svigrúm til að leyfa dýrahald ef þeir óska. Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins fer fyrir tillögunni.
„Allt gæludýrahald hefur breyst,“ sagði Hildur þegar Vísir náði af henni tali. „Allar rannsóknir sýna að það er betra að hafa gæludýr en ekki. Það lífgar uppá og gerir borgarumhverfið betra að hafa þau sem víðast. Þótt auðvitað þurfi að huga vel að hreinlæti, ofnæmisvöldum og öðrum álitamálum sem sjálfsagt er að taka tillit til.“
Ríkið setur sveitarfélögum skorður
Tillagan sem Hildur talar fyrir gengur út á að borgarstjórn sammælist um að beina því til ríkisvaldsins að sveitarfélögunum verði í sjálfsvald sett hvernig þau vilja haga reglum um hollustuhætti og matvæli. Eins og staðan er núna er í gildi reglugerð um hollustuhætti sem bannar aðgang gæludýra að ákveðnum stöðum og gildir hún yfir allt landið.
Hjálparhundar fatlaðs fólks fá undanþágu frá reglum reglugerðarinnar sé hinum fatlaða ótvíræð nauðsyn á hjálparhundi. Sveitarfélögin hafa síðan frelsi til þess að setja þrengri reglur um gæludýrahald en ekki opnari heldur en reglugerðin kveður á um.
Málið snýst um frelsi
Hildur segir því í fyrstu þurfa að færa þessa reglusetningu frá ríkinu til sveitarfélaga. Svo vonar hún að sveitarfélögin hagi reglum sínum þannig að stöðum verði svo í kjölfarið frjálst að stýra því hvort að gæludýrum er veittur aðgangur eða ekki. Staðirnir stýra því þá hvernig þeir haga reglum á eigin stað og afleiðingin verður að kúnnar hafa val um hvort þeir sækja stað sem leyfir gæludýrahald eða ekki.
„Það er réttlætismál að sveitarfélög hafi svigrúm gagnvart eigendum slíkra staða að leyfa dýrahald ef þeir óska.“
Hildur segir tillöguna eiga við alla opinbera staði svo sem á kaffihúsum, veitingastöðum, líkamsræktarstöðvum, samkomuhúsum og svo framvegis.
„Í rauninni er þetta frelsismál,“ segir Hildur. Að hennar mati er eðlilegt að borgarstjórn sammælist um þetta þar sem stefna borgaryfirvalda hefur verið að þétta byggð á höfuðborgarsvæðinu. Hún segir það hlutverk borgaryfirvalda að tryggja gæði í borginni fyrir íbúa og það sé örðugt að vera með gæludýr í húsi með engum garði ef dýrið er ekki velkomið neins staðar.
Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifaði greinina á Vísir.is
http://www.visir.is/vill-ad-eigendur-stada-fai-frelsi-til-ad-setja-ser-reglur-um-gaeludyr/article/2015150519082