Tugir hunda heimsækja fólk á heimili og stofnanir

Visir.is

JÓN HÁKON HALLDÓRSSON SKRIFAR

Rauði krossinn í Kópavogi er með námskeið fyrir Heimsóknarvini með hund í dag. Heimsóknarvinir Rauða krossins eru sjálfboðaliðar, sem heimsækja fólk á heimili þess, á stofnanir, sambýli og dvalar- og hjúkrunarheimili. Misjafnt er hvað felst í heimsókn en það getur til dæis verið spjall, gönguferð, ökuferð, upplestur, aðstoð við handavinnu og svo framvegis. Þegar heimsóknarvinur er með hund er hundurinn í aðalhlutverki.

„Þetta hefur komið mjög vel út og er mjög mikil ánægja með þetta verkefni. Það er alltaf að bætast við hjá okkur þannig að það eru heimsóknir í hverju einustu viku,“ segir Aðalheiður Jónsdóttir hjá Rauða krossinum í Kópavogi.

Aðalheiður segir verkefnið heimsóknarvinur með hund vera um það bil tíu ára gamalt. Á landsvísu er í dag 51 sjálfboðaliði með hund sem tekur þátt í verkefninu. Aðalheiður segir hópinn vera mjög fjölbreyttan.

„Þetta eru allar stærðir og gerðir af hundum og alls konar fólk og eigendur að hundunum. Þeir heimsækja líka ofboðslega fjölbreytta flóru. Þeir heimsækja bæði Rjóðrið, sem er heimili fyrir langveik börn og heimsækja einstaklinga á öllum aldri. Svo erum við með fólk sem er að heimsækja fólk á dvalarheimilum og stofnunum. Þetta eru mjög fjölbreytt verkefni sem við erum að sinna.“ Aðalheiður bendir á rannsóknir sem hafa sýnt að það hjálpi oft fólki að umgangast dýr. Til dæmis hafi sést merkjanleg áhrif hjá fólki sem byrjað er að fá heilabilun. „Fólk virðist oft ná betur til dýra en til annars fólks,“ segir Aðalheiður og bendir á að tengslin milli manna og dýra geti verið mjög ólík tengslum fólks við annað fólk.

Rauði krossinn í Kópavogi heldur utan um verkefnið Heimsóknarvinir með hund á landsvísu. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt geta skráð sig þar eða haft samband á netfangið kopavogur@redcross.is.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.

http://www.visir.is/tugir-hunda-heimsaekja-folk-a-heimili-og-stofnanir/article/2016161119533

Mynd úr safni Hundalífspóstsins ÞBZ