Þórhildur Bjartmarz:
Hlýðnipróf Vinnhundadeildar var haldið sunnudaginn 29, maí 2016. Þetta var seinni dagurinn í 2. daga prófi sem haldið var við félagsheimilið Breiðablik í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Veður var mjög gott um 10 stiga hiti, logn og skúrir. Þetta var frábær dagur og prófið gekk vel þennan dag.
Prófstjóri var Brynhildur Bjarnadóttir
Dómari var Þórhildur Bjartmarz
8 hundar voru skráðir í próf þennan dag 4 í bronsmerki og 4 í hlýðni I.
2 hundar fengu einkun í bronsmerki:
Í 1. sæti var Kristín Jóna og Nótt labrador retriever
Í 2. sæti var Theresa og Blakkur íslenskur fjárhundur
Í hlýðni I fengu allir hundarnir I. einkunn:
Í 1. sæti var Vala og Fóa snauzer með 190,5 stig
Í 2. sæti var Kristín Jóna og Kara labrador
Í 3. sæti var Elín Lára og Gjóska border collie
Í 4. sæti var Ditta og Sandra íslenskur fjárhundur