Sporapróf Vinnuhundadeildar HRFÍ í ágúst

Þriðja sporapróf ársins var haldið á Hólmsheiðinni föstudaginn 31. ágúst. Því miður hefur þátttaka í sporaprófunum ekki verið mikil undanfarin ár og lítil nýliðun í sportinu. Nú voru aðeins fjórir hundar skráðir í prófið allir í framhaldsflokki, þrír hundar í spori 2 og einn í spori 3.

Prófið var sett kl. 15 við ágætis aðstæður sunnan 9 m/sek, 10 stiga hita og smá rigningu. Dómari og prófstjóri voru með allar fjórar sporaslóðirnar tilbúnar og því hægt að senda hundana strax út í vinnu.

Fyrst í braut var Abbadís sem tók próf í spori 3. Hún var snögg að leysa fyrsta hluta prófsins sem er að finna sporaslóð í ca 30 x 30 metra ramma. Eftir það tók við 1200 metra slóð 80 til 100 mín gömul með sjö millihlutum, einni 30° beygju, sex 90°beygjum og endahlut. Hundurinn verður að leysa verkefnið innan ákveðins tíma. Abbadís lauk sporavinnunni á góðum tíma en skilaði sex millihlutum sem gaf 8 refsistig en fékk í öðru fulla einkunn. Lokaeinkunnin var því 92 stig af 100 mögulegum.

  1. sæti með I. einkunn Abbadís með 92 stig.

 

Þrír hundar voru skráðir í spor 2. Tveir náðu prófi, annar með 100 stig en hinn með 72 stig sem er þriðja einkunn. Í spori 2 er lögð 1000 metra slóð með fimm 90° beygjum,  fimm millihlutum og endahlut. Slóðin eru u.þ.b. 60-80 mín gömul þegar hundur byrjar við upphafspunkt. Hundurinn á að finna sporaslóðina en stjórnandinn fær að vita hvar hún liggur. Æfingin byrjar í ca 15 metra fjarlægð frá slóðinni. Fjalladís fann upphafspunkt og alla hluti og fékk 100 stig af 100 mögulegum. Svarthöfða Jon Bon Jovi lenti hins vegar í vandræðum með upphafsslóðina og var vísað á fastan punkt og missti þar 20 stig. Auk þess vantaði einn millihlut í lokin sem gaf 8 refsistig eða samtals 28 stig frá 100 stigum. Lokaeinkunn var því 72 stig. Þriðji hundurinn sýndi lítinn áhuga fyrir sporavinnunni þennan dag og stjórnandi hætti við prófið og reynir síðar. Í spori 2 þarf hundurinn að ljúka sporavinnunni innan ákveðins tíma.

  1. sæti með I. einkunn Ibanez white shephard Fjalladís með 100 stig
  2. sæti með III. einkunn Svarthöfða Jon Bon Jovi með 72 stig

Dómari: Albert I Steingrímsson

Prófstjóri: Kristjana Guðrún Bergsteinsdóttir

F.h. Vinnuhundadeildar vil ég þakka þeim Alberti og Kristjönu fyrir þeirra framlag, gott skipulag og viðmót.

 

Dýrheimar/Royal Canin gaf verðlaun