Af heimasíðu Hundaræktarfélags Íslands:
FCI hefur látið útbúa logó til að mótmæla hátíð um hundaát sem fram fer í Yulin í Kína. Hundakjöts-hátíðin í Yulin í Kína fer fram 22. júní ár hvert. Þar kemur fólk saman og borðar hundakjöt til að fagna sumarsólstöðum, en árið 2014 voru um 10 þúsund hundar drepnir á hátíðinni í Yulin til að metta hátíðargesti. Hundaræktarfélag Íslands gerði alvarlegar athugasemdir við hátíðina í fyrra og sendi meðal annars kínverskum yfirvöldum harðort bréf þar sem hátíðinni var mótmælt.
Félagsmenn eru beðnir um að standa saman um að deila logóinum á sem flestum samfélagsmiðlum.