Þórhildur Bjartmarz:
Ég hvet alla hundaeigendur til að lesa greinina FELLES FRONT MOT LIDELSE sem birt er á heimasíðu NKK í dag.
Þar er greint frá því að stjórnarfundir verða næsta fimmtudag bæði í danska og finnska hundaræktarfélaginu. Norðmenn vænta þess að bæði félögin veiti þeim liðstyrk í mótmælum til FCI varðandi Kína. Sænska félagið hefur þegar lýst yfir fullum stuðningi við NKK.
Ennfremur segir í fréttatilkynningunni; ef þú ert enn í vafa, kynntu þér málið og skoðaðu myndir (Bilde 1-4) neðst á síðunni.
ATH: Myndirnar eru ekki fyrir viðkvæma Þeir sem ekki treysta sér til að lesa greinina á norsku munið eftir google þýðingu: (úrdráttur: Málið fjallar um hræðilega meðferð á fjórfættum vinum okkar. Myndir frá Kína sýna lifandi hunda skorna í bita, þær sýna hunda sem fleygt er í sjóðandi vatn undir lófaklappi áhorfenda, þær sýna hunda fláða lifandi því þannig smakkast kjötið best. Þetta hefur ekkert með menningu að gera og þetta verður að stoppa)