Nýtt og endurbætt skapgerðarmat vegna innflutnings hunda
Árlega eru um 160 hundar fluttir til Íslands víðs vegar að úr heiminum. Skilyrði vegna innflutnings eru m.a. bólusetningar og sýnatökur auk fjögurra vikna einangrunar. Tilgangurinn er að draga úr líkum á að til landsins berist nýir dýrasjúkdómar. Samkvæmt lögum um innflutning dýra skal ekki heimila innflutning á gæludýrum sem hætta getur stafað af og því er krafist svokallaðs skapgerðarmats fyrir hunda af tilteknum tegundum. Um er að ræða hunda sem stærðar og/eða styrkleika síns vegna geta valdið alvarlegu tjóni ef þeir hafa tilhneigingu til árásargirni.
Frá árinu 2003 þegar reglugerð um innflutning gæludýra og hundasæðis var fyrst sett hefur verið í notkun skapgerðarmat sem framkvæmt hefur verið af dýralæknum ytra. Með því mati hefur verið kannað hvernig viðkomandi hundar bregðast við mismunandi áreiti og aðstæðum með það að markmiði að skera úr um hvort þeir eru árásargjarnir.
Undanfarna mánuði hafa sérfræðingar á inn- og útflutningsskrifstofu og á dýraheilbrigðissviði Matvælastofnunar í samráði við sérfræðinga í atferlisfræði dýra unnið að nýju skapgerðarmati. Niðurstaðan varð skapgerðarmat sem byggist á sömu grundvallaratriðum og fyrra mat en meira er lagt uppúr því að framkvæmdin sé stöðluð. Um er að ræða 9 þætti sem lúta að viðbrögðum hundsins í mismunandi aðstæðum. Leiðbeiningar eru um hvernig prófa skal hundinn og skrifa skal ítarlegar lýsingar á viðbrögðum hans. Auk þess skal taka myndband af framkvæmd matsins og senda með skýrslunni til Mast svo hægt sé að ganga úr skugga um að hundurinn hafi verið prófaður eins og til er ætlast.
Eftir sem áður skulu dýralæknar annast framkvæmd skapgerðarmats. Dýraatferlisfræðingar eru víða starfandi og var það skoðað að fá slíka sérfræðinga til að framkvæma skapgerðarmat vegna innflutnings. Þó yrði slíkt vandkvæðum bundið þar sem nám atferlisfræðinga getur verið afar mismunandi eftir löndum, víðast hvar er ekki um að ræða lögverndað starfsheiti og aðgengi að þeim er misgott.
Lágmarksaldur hunda sem undirgangast skapgerðarmat verður 6 mánuðir. Við þann aldur eru langflestir hundar búnir að ná kynþroska og skapgerðareinkenni eru komin fram. Þó væri æskilegt að hundarnir væru eldri þegar slíkt mat færi fram en slíkt yrði of hamlandi þar sem lágmarksaldur hunda vegna innflutnings er 7 mánuðir en 5 mánuðir þegar þeir koma frá skilgreindum löndum þar sem hundaæði finnst ekki, m.a. Noregi og Svíþjóð.
Markmiðið með endurbættu skapgerðarmati er að auka gildi þess. Eigi það að skila tilætluðum árangri þ.e. að koma í veg fyrir að árásargjarnir og hættulegir hundar verði fluttir til landsins þarf matið að vera framkvæmanlegt og marktækt.
Nýtt skapgerðarmat vegna innflutnings verður tekið í notkun þann 1. júlí nk.