Skráning á málþing um velferð gæludýra

Málþing: Nýjar reglur um velferð gæludýra

24.02.2016 Fræðslufundir

Matvælastofnun og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið halda opið málþing um velferð gæludýra fimmtudaginn, 3. mars kl. 13:00 – 16:00 í fyrirlestrarsal ráðuneytisins að Skúlagötu 4 (1.h.) í Reykjavík. Á málþinginu gefst gæludýraeigendum og öðrum áhugasömum kostur á að fræðast um kröfur og helstu nýmæli nýrrar reglugerðar um velferð gæludýra, með gagnvirkum umræðum í lokin.

Með útgáfu reglugerðarinnar hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið lokið útfærslu á nýjum dýravelferðarlögum fyrir allar helstu dýrategundir sem löggjöfin nær yfir. Matvælastofnun fer með framkvæmd laganna og reglugerða um velferð dýra og hefur eftirlit með að ákvæðum þeirra sé fylgt.

Dagskrá

  • 13:00 – 13:10      Ný reglugerð um velferð gæludýra
    Halldór Runólfsson, fundarstjóri
  • 13:10 – 13:20      Af hverju nýjar reglur og hver fylgist með?
    Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir
  • 13:20 – 14:30      Meðferð, umhirða og aðbúnaður gæludýra
    Þóra J. Jónasdóttir, dýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun
  • 14:30 – 14:45      Hlé
  • 14:45 – 15:15      Tilkynningarskylt dýrahald – hvað er það?
    Þóra J. Jónasdóttir, dýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun
  • 15:15 – 15:55      Umræður
  • 15:55 – 16:00      Samantekt og lokaorð
    Halldór Runólfsson, fundarstjóri

Skráning

Málþingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og eru allir velkomnir! Skráning fer fram á netfanginu mast@mast.is. Vinsamlega takið fram fullt nafn, fyrirtæki/samtök og netfang þátttakanda við skráningu. Skráningarfrestur er til 1. mars nk.

Ítarefni