Stjórn HRFÍ setti sig í dag í samband við Kínverska Sendiráðið á Íslandi og mótmælti harðlega “hátíð um hundaát” sem er árlegur viðburður í Yulin í Kína. Stjórn lýsti andúð á athæfinu og hvatti til þess að yfirvöld gripu í taumana og stöðvuðu óhugnaðinn sem þarna ætti sér stað. Að sama skapi setti stjórn sig í samband við Kínverska hundaræktarfélagið og lýsti afstöðu sinnar til hátíðarinnar og hvatti félagið til að berjast harkalega gegn þessum árlegu misþyrmingum og lýsti stuðningi við slíkri baráttu. sjá meira;http://www.hrfi.is/freacutettir
Related Posts
-
0Tweet Share 0 Reddit +1 Pocket LinkedIn 0 Þórhildur Bjartmarz: …
-
-
-
About The Author
ÞÞórhildur Bjartmarz er hundaþjálfari í hundaskólanum Hundalíf þar sem hún er leiðbeinandi á námskeiðum. Hún hefur áhuga á öllu sem varðar hundalífið sérstaklega þó allskyns vinnu með hundum. Þeir sem vilja hafa samband við Þórhildi er bent á netfangið; hundalif@hundalif.is eða thorhildurbjartmarz@gmail.com Þórhildur hefur viðurkennd dómararéttindi frá HRFÍ til að dæma hlýðni og sporapróf. Þórhildur var formaður Hundaræktarfélags Íslands frá 1997-2005. Hún hefur mikla þekkingu á sögu hunda á Íslandi og hefur tekið saman heimildir í fyrirlestra sem hún kallar hundalíf í sögu þjóðar. Þeir sem vilja hafa samband við Þórhildi er bent á netfangið; hundalif@hundalif.is eða thorhildurbjartmarz@gmail.com