Þórhildur Bjartmarz:
Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands verður haldinn á morgun 25. maí.
Eftir langa sýningarhelgi verður aðalfundur félagsins haldinn á Hótel Sögu. Herdís Hallmarsdóttir er sjálfkjörin nýr formaður félagsins en kosið verður um tvo stjórnarmenn og einn varamann. Viðtal við Herdísi sem birt var í Mbl í síðustu viku má sjá hér á síðunni undir yfirskriftinni „samfélagið viðurkenni hunda“.
Mbl: Herdís Hallmarsdóttir, varaformaður Hundaræktendafélags Íslands, kallar eftir réttarbótum fyrir hundaeigendur.
Herdís gefur félagsmönnum góða von um breytingar þegar hún segist í viðtalinu kalla eftir réttarbótum fyrir hundaeigendur. Fyrir mistök blaðamannsins er hún sögð varaformaður Hundaræktendafélags Íslands. En er það ekki einmitt verkefni nýrrar stjórnar að sýna það og sanna á opinberum vettvangi að félagið er ekki hagsmunafélag hundaræktenda heldur félag allra hundaeigenda?
Nú verður kosið á tveimur stöðum. Á Akureyri verður Svæðafélag Akureyrar með fjarfundabúnað. Þar geta félagar í HRFÍ komið saman á fund í Draupnisgötu og nýtt sér atkvæðisrétt sinn.
Af heimasíðu HRFÍ: Aðalfundur verður haldinn í Kötlu á Radisson BLU Saga Hotel Hagatorg, 107 Reykjavik, þriðjudaginn 26. maí kl.20:00
Dagskrá:
Skipan fundarstjóra, fundarritara og lögmæti fundarins kannað
- Skýrsla stjórnar HRFÍ
- Heiðrun heiðursfélaga
- Ársreikningar félagsins ásamt skýrslum endurskoðenda og félagskjörinna skoðunarmanna fyrir síðastliðið ár, lagðir fram til staðfestingar.
- Skýrsla um starfsemi siðanefndar
- Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar samþykkt fyrir næsta starfstímabil
- Lagabreytingar
- Kosning formanns HRFÍ og annarra stjórnarmanna skv. 10.gr.
- Kosning tveggja félagskjörinna skoðunarmanna og tveggja til vara
- Kosning siðanefndar
- Önnur mál
Á fundinum hafa þeir einir kjörgengi sem greitt hafa félagsgjald sitt fyrir það ár sem aðalfundur er haldinn á, fimm virkum dögum fyrir aðalfund.
Á aðalfundinum verður kosið um:
Formann
Í framboði er Herdís Hallmarsdóttir
Tvo meðstjórnendur – Í framboði eru:
Daníel Örn Hinriksson til vara í varastjórn
Eyrún Arnardóttir til vara í varastjórn
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Guðný Vala Tryggvadóttir til vara í varastjórn
Pétur Alan Guðmundsson til vara í varastjórn
Þórdís Björg Björgvinsdóttir til vara í varastjórn
Einn varamann – Í framboði er:
Brynja Tomer