Fyrsta hlýðnipróf Vinnuhundadeildar HRFÍ 2019

 

Fysta hlýðnipróf Vinnuhundadeildar var haldið í dag í reiðskemmu Sprettara á Kjóavöllum. 10 hundar voru skráðir í prófið en 8 hundar mættu ásamt þjálfurum.

Tveir hundar tóku Bronspróf og náðu prófi:

  1. sæti með 162 stig og Bronsmerki HRFÍ var Norðan Heiða Svartaþoka Skotta og Gunnhildur Jakobsdóttir
  2. sæti með 103,5 stig var Bifrastar Frigg eigandi Ragna Þóra Samúelsdóttir

Báðar tíkurnar tóku þátt í Bronsprófi í fyrsta sinn og skiluðu mjög góðu prófi. Poodle tíkin Bifrastar Frigg fékk 0 í einkunn fyrir æfinguna að liggja kyrr í 1 mín. og fékk því ekki Bronsmerki HRFÍ.

 

 

Þrír hundar tóku Hlýðni I próf og náðu prófi:  

  1. sæti með 157 stig 2. einkunn – Ibanez White Shepherd Fjalladís og Þórhildur Bjartmarz
  2. sæti með 151,5 stig 2. einkunn – Undralands Majeure (Sóley) og Ditta Tómasdóttir
  3. sæti með 136,5 stig 3. einkunn – Ljósvíkur Alda og Ingibjörg Friðriks

Þessar þrjár tíkur fengu allar 0 í einni æfingu sem dró einkunnir verulegar niður

 

 

 

Tveir hundar tóku Hlýðni II próf og náðu 1. einkunn:

  1. sæti með 186 stig 1. einkunn – Abbadís og Þórhildur Bjartmarz
  2. sæti með 177 stig 1. einkunn – Forynju Aska og Hildur Pálsdóttir

Abbadís var að taka þátt í þriðja skiptið í Hlýðni II og fékk í þriðja sinn 1. einkunn. Forynju Aska er komin með nafnbótina OB-1 og var að taka þátt í Hlýðni II í fyrsta sinn og fékk gullmerki HRFÍ.

 

Einn hundur tók Hlýðni III próf:

  1. sæti með 249,5 stig 2. einkunn – Vonziu´s Asynja og Hildur Pálsdóttir

 

 

Prófið gekk vel fyrir sig í alla staði og gaman að byrja nýtt starfsár með glæsilegu prófi.

Dómari var Silja Unnarsdóttir

Prófstjóri var Marta Sólveig Björnsdóttir

Ritari var Stefanía H. Sigurðardóttir

Stjórn Vinnuhundadeildar þakkar þeim sem komu að prófinu fyrir þeirra framlag