Fyrsta sporapróf ársins 2021 var haldið í dag 2. september. Einungis tveir hundar voru skráði í prófið báðir í eigu Hildar Sif Pálsdóttur. Báðir hundarnir voru skráðir í Spor I.
- sæti með 90 stig I. einkunn Forynju Bara Vesen – German shepherd dog IS26981/19
- sæti með 85 stig II. einkunn Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn – German shepherd dog IS26982719
Prófið fór fram á Hólmsheiðinni við bestu skilyrði í 13 stiga hita og smá andvara. Hundarnir skiluðu frábærri sporavinnu en minniháttar mistök drógu þá niður í einkunn.
Til hamingju með árangurinn Forynju-ræktun.
Prófstjóri og sporaleggjari: Erna Sigríður Ómarsdóttir
Dómari: Þórhildur Bjartmarz