„Ég er hundfúll,“ segir Sverrir

DV – valur@dv.is:  Sverrir greindist með geðklofa fyrir 23 árum síðan og hefur barist við geðsjúkdóminn síðan þá. Nú býr hann í íbúð á vegum hússjóð Öryrkjabandalagsins, en gæludýrahald er bannað í leiguíbúðum sjóðsins.

„Þetta getur skipt sköpum fyrir andlega heilsu mína,“ segir Sverrir Jónas Jónasson, sem er ósáttur við Brynju, hússjóð Öryrkjabandalagsins, þar sem hann heldur því fram að athugasemdir séu gerðar við það að hann fái hund í heimsókn til sín á heimili sitt í Hátúni.

Sverrir greindist með geðklofa fyrir 23 árum síðan og hefur barist við geðsjúkdóminn síðan þá. Nú býr hann í íbúð á vegum hússjóð Öryrkjabandalagsins, en gæludýrahald er bannað í leiguíbúðum sjóðsins.

Hart var deilt um gæludýrahald í íbúðum hússjóðsins í maí á síðasta ári eftir að DV vakti athygli á málinu.

„Ég er bara með hund sem ég passa af og til,“ segir Sverrir en um Husky hund er að ræða. Sverrir segir hundinn hlýðinn og hávaði sé enginn. Fyrir hefur komið að hundurinn, sem heitir Samona, hafi verið hjá honum næturlangt. Hann segir félagsskapinn mikilvægan og skipti miklu máli þegar kemur að einverunni.

“Ég skil að það sé bannað að vera með gæludýr í húsinu, ég átta mig alveg á því, en mér finnst þetta bara svo sorglegt, og dapurt,“ segir Sverrir. Hann segir að húsverðir hússins séu afar strangir þegar kemur að dýrum í húsinu, og segir þá gera athugasemdir við það þegar hann er með hundinn, eða þegar vinkona hans, sem er eigandi hundsins kemur með hann.

Hart var tekist á um gæludýrahald í fjölbýlishúsum á vegum Öryrkjabandalagsins á stjórnarfundi félagsins í maí á síðasta ári eftir að fjölmiðlar fjölluðu um málið.

Þá kom Garðar Sverrisson, formaður Brynju hússjóðs á fundinn og áréttaði að reglur um gæludýrahald í fjölbýlishúsum hefði alla tíð verið til og gilda þær til dæmis hjá Félagsbústöðum, Búseta, Stúdentum og almennum leigufélögum.

Ástæðan fyrir reglunum eru vegna þess að sumt fólk hefur ofnæmi fyrir dýrunum, aðrir eru hræddir við þau og oft fylgir þeim óhreinlæti.

Þá hafa ýmis vandamál hafa komið upp sem tengjast meðferð á dýrunum því fyrir kemur að eigendur dýranna hafa ekki getað hirt um þau eins og til er ætlast.

Þá segir í fundargerðinni að málið snúist aðallega um ketti og hunda, og hefur fólk stundum sagst vera að geyma dýr fyrir aðra.

Fram komu hugmyndir á fundinum að gæludýr væru leyfð í sumum fjölbýlishúsum á vegum Brynju, í ljósi þess að það er vel þekkt að gæludýr hafa góð og heilsusamleg áhrif á einstaklinga. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það, eftir því sem DV kemst næst.

Brynja á fjölbýlishús á tveimur stöðum, í Hátúni og Sléttuvegi, þar sem hertari reglur um gæludýrahald var mótmælt harkalega á síðasta ári.

Sverrir er mikill dýravinur og honum svíður undan að fá ekki að hafa hundinn hjá sér í heimsókn. „Það skiptir miklu máli fyrir mitt sálarlíf að umgangast dýr,“ segir Sverrir og bætir við: „Svo er ég líka bara að hugsa um fólk sem er einmanna og vill hafa einhvern félagsskap hjá sér.“

Ekki náðist í Björn Arnar Magnússon framkvæmdastjóra Brynju, þegar eftir því var leitað. Í viðtali við DV í apríl á síðasta ári sagði hann: „Dýrahald er bannað í leiguíbúðum okkar. Það eru lög í landinu sem segja að ef sameiginlegur inngang er að ræða er hunda- og kattahald bannað nema að allir sem hann nota séu sammála því að leyfa dýrahald.“

http://www.dv.is/frettir/2016/2/3/oryrki-faer-ekki-ad-vera-med-hund-i-heimsokn-eg-er-hundfull-segir-sverrir 

myndin er úr safni