Þórhildur Bjartmarz:
Það styttist í Evrópusýninguna 2015 sem verður haldin af NKK í Osló (Lilleström) 4. til 6. september. Eftir sýninguna verður fundur í FCI, European Section. Norska hundaræktarfélagið leggur áherslu á að fjallað verði um hundavelferð á fundinum og vill að FCI skuldbindi sig til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að kröfur um velferð hunda í aðildafélögum FCI sé virt.
NKK segir jafnframt í fréttatilkynningu að fundur FCI European Section sé rétti vettvangurinn til að ræða alþjóðlega hundavelferð og að þeim málefnum verði tekið alvarlega.
http://web2.nkk.no/no/nyheter/Fremmer+krav+om+hundevelferd.b7C_wlzM5C.ips
http://www.europeandogshow2015.com/en/