Hlýðnipróf nr 5 2019

Fimmta hlýðnipróf Vinnuhundadeildar HRFÍ var haldið nú í kvöld, 10. september í reiðhöll Sprettara á Hattarvöllum.

Aðeins fjórar tíkur voru skráðar í prófið allar í hlýðni I. Þessar tíkur áttu það sameiginlegt að eiga fyrir tvær fyrstu einkunnir í hlýðni I og eigendurnir komnir til að freista þess að ná í þriðja sinn fyrstu einkunn og þar með uppfylla skilyrði til að fá OB-I titlil í ættbók.

Prófið gekk fljótt og vel fyrir sig. Allar tíkurnar fjórar fengu I. einkunn og bætast í hóp þeirra hunda sem fengið hafa titilinn OB-I í ættbók.

I. sæti með 186 stig var IS 21550-16 Undralands F. Majeure, (Sóley) Shetland sheepdog,

eigandi: Ditta Tómasdóttir

2. sæti með 180 stig var IS 23461-17 Gjósku Vænting, German shepherd,

eigandi: Tinna Ólafsdóttir

3. sæti með 173,5 stig var IS 16637-12 Ljósvíkur Alda, labrador retriever,

eigandi: Ingibjörg Friðriksdóttir

4. sæti með IS 24111-17 Ibanez White Shepherd Fjalladís,

eigandi: Þórhildur Bjartmarz

Dómari: Silja Unnarsdóttir

Prófstjóri: Hildur Pálsdóttir

Ritari: Guðbjörg Guðmundsdóttir