Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands 2017

Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands 2017

Hægt er að greiða atkvæði utan kjörfundar í 1. sinn.

Kosningarétt á aðalfundi og við utankjörfundaratkvæðagreiðslu hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald til félagsins fyrir árið 2017 í síðasta lagi þann 10. maí 2017.

 

AUGLÝSING UM UTANKJÖRFUNDARATKVÆÐAGREIÐSLU FYRIR AÐALFUND HRFÍ 17. MAÍ 2017
Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands fer fram þann 17. maí 2017, kl. 20:00, að Hótel Cabin, Borgartúni 32, 105 Reykjavík.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir aðalfund fer fram á skrifstofu Hrfí, Síðumúla 15, 108 Reykjavík, dagana 11.-12. maí og 15.-17. maí 2017, kl. 10-12 og 13-15, alla dagana.
Kosningarétt á aðalfundi og við utankjörfundaratkvæðagreiðslu hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald til félagsins fyrir árið 2017 í síðasta lagi þann 10. maí 2017.
Kjörskrá við utankjörfundaratkvæðagreiðslu og kosningu á aðalfundi verður lögð fram miðað við lok dags 10. maí 2017.
Í framboði til formanns félagsins til tveggja ára er Herdís Hallmarsdóttir sem telst sjálfkjörin í embætti formanns.
Í framboði til embættis tveggja meðstjórnanda til tveggja ára eru:
Damian Krawczuk
Daníel Örn Hinriksson
Kjartan Antonsson
Pétur Alan Guðmundsson
Viktoría Jensdóttir
Í framboði til embættis eins varamanns til tveggja ára eru:
Damian Krawczuk
Kjartan Antonsson
Viktoría Jensdóttir
Þórdís Björg Björgvinsdóttir
(Þórdís Björg Björgvinsdóttir býður sig eingöngu fram í embætti varamanns. Aðrir frambjóðendur í sæti varamanns bjóða sig fram aðallega til embættis meðstjórnenda, en til vara í embætti varamanns).
Um kosninguna fer að öðru leyti samkvæmt lögum félagsins og reglum um kjörgengi, -gögn og fyrirkomulag kosninga stjórnarmanna á aðalfundi Hrfí.

Reykjavík 3. maí 2017
Kjörstjórn á aðalfundi Hundaræktarfélags Íslands 2017
Ari Karlsson
Jónas Friðrik Jónsson
Guðný Rut Ísaksen

Sjá heimasíðu hrfí:

http://www.hrfi.is/freacutettir/aalfundur-hundaraektarfelags-islands-2017