HRFÍ auglýsir eftir ritstjóra Sáms

Af heimasíður HRFÍ:

Ert þú góður penni og hefur áhuga á að skrifa fjölbreyttar greinar um hunda?  HRFI leitar að góðum penna til að taka að sér ritnefnd blaðsins sem er tilbúin að skrifa áhugaverðar greinar varðandi allt sem viðkemur hundum ásamt því að ritstýra blaðinu

Ritstjóri skal hafa yfirumsjón með útgáfu Sáms sem gefin er út tvisvar sinnum ári, um mitt ár og í lok árs.  Ritstjóri aðstoðar við auglýsingasöfnun en framkvæmdastjóri HRFI hefur yfirumsjón yfir henni sem og rekstri blaðsins.
Þá skipar ritstjóri í ritstjórn og stýrir störfum hennar.

Verkefni ritstjóra eru ma.:
Ritstjórn blaðsins
Efnisöflun og skrif
Samskipti við hönnuði, ljósmyndara og prentsmiðju
Markaðs- og kynningarmál

Æskilegt er að ritstjóri uppfylli eftirfarandi hæfnisskilyrði:

  • Þekkingu og áhugi á málefnum félagsins
  • Reynsla af fjölmiðla- og útgáfustörfum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Gott vald á íslenskri tungu
  • Kunnátta í að minnsta kosti einu norðurlandamáli er kostur
  • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
  • Hæfileiki til að vinna með starfsmönnum skrifstofu HRFI og öðrum hagsmunaaðilum.

Áhugasamir eru hvattir til að senda sækja um, allari nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri HRFI á netfanginu fridur@hrfi.is. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsóknir á fridur@hrfi.is eða hrfi@hrfi.is
Umsóknarfrestur er til og með 1. des 2015.

http://www.hrfi.is/freacutettir